Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga er í fullum gangi og stendur til 15. júlí næstkomandi. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar sama dag. Hægt er að greiða atkvæði í gegnum upplýsingasíðu SGS um samninginn (undir „Atkvæðagreiðsla“) eða með því að smella hér.
Til að greiða atkvæði um samninginn þarf viðkomandi að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 09:00 mánudaginn 15. júlí en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins vandlega og nýta sinn atkvæðisrétt.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og innihald samningsins má nálgast hér.