Fréttir

Atkvæðagreiðsla hafin um nýjan kjarasamning við ríkið

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóð hófst á slaginu kl. 12:00 í dag og stendur til 8. júlí næstkomandi. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar sama dag. Hægt er að greiða atkvæði í gegnum upplýsingasíðu SGS um samninginn (undir „Atkvæðagreiðsla“) eða með því að smella hér eða á hnappinn hér að neðan.

Til að greiða atkvæði um samninginn þarf viðkomandi að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í Drífandi stéttarfélags sem vinna eftir viðkomandi samningi. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu félagsins að Miðstræti og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 09:00 mánudaginn 8. júlí en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins vandlega og nýta sinn atkvæðisrétt.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og innihald samningsins má nálgast hér.

[ KJÓSA ]

Við notum vefkökur til að gera upplifunina þína á vefnum okkar sem besta.
Ef þú heldur áfram að nota síðuna, þá gerum við ráð fyrir að þú samþykkir það.